Um þrjár milljónir manna hafa flúið land, lyf og matvæli fást ekki nema fyrir útvalda vini stjórnvalda, skólar og heilsugæslur geta ekki starfað, pólitískir andstæðingar stjórnvalda eru fangelsaðir og pyntaðir og þeir eru sem hafa það gott eru vinir og ættingjar þeirra sem fara með völdin. Í landinu ríkir algjör upplausn.
Til að bæta gráu ofan á svart hafa stjórnvöld hunsað réttmætar kröfur almennings um lýðræðislegar kosningar og núverandi forseti hagar sér eins og einræðisherra, líkt og hann hefur gert á undanförnum árum.
Þessi þróun á sér langan aðdraganda. Þrátt fyrir miklar náttúruauðlindir, s.s. olíu og frjósamt land fyrir matvælaframleiðslu, ríkir hungursneyð í landinu – hungur í boði hugmyndafræði sem hefur alltaf haft slæmar afleiðingar fyrir almenning.
Það er ánægjulegt að íslensk stjórnvöld hafi skipað sér í raðir vestrænna ríkja og lýst yfir stuðningi við sitjandi forseta þingsins sem forseta til bráðabirgða. Í framhaldinu er rétt að fram fari kosningar í landinu. Það er von okkar að þær kosningar fari fram með eðlilegum hætti og endurspegli vilja fólksins í landinu.
Lesa má viðtal vegna fundar í utanríkismálanefnd vegna þessa máls.