Forystuleysi

Það fer ekki framhjá neinum að foreldrar ungra barna í Reykjavík eru í vanda staddir þar sem þeir fá ekki leikskólapláss fyrir börnin sín, með tilheyrandi vinnu- og tekjutapi. Þetta er alvarlegt mál og hefur bein áhrif á lífsgæði fólks í borginni. Borg sem getur ekki þjónustað ungt barnafólk býður ekki upp á bjartar framtíðarhorfur og það er eðlilegt að fólk láti í sér heyra.

Það hefur þó aldrei verið skortur á loforðum. Árið 2014 kom loforð um að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla með fjölbreyttum aðferðum. Árið 2018 var loforðið það að hægt yrði að bjóða 12 til 18 mánaða börnum pláss, ásamt því að fram kom að staðan væri við það að leysast. Fyrir kosningarnar í ár var síðan sagt að meirihlutinn væri að ljúka við að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og fullyrt að hægt yrði að bjóða öllum 12 mánaða börnum leikskólavist í haust. Hin raunverulega staða er þó allt önnur. Núna hefur borgarbúum með börn hefur verið sagt að bíða í viku eftir svari. Verst er að vikurnar eru nú þegar orðnar fjögur hundruð tuttugu og átta.

Vanmáttur Reykjavíkurborgar í leikskólamálum er bara ein birtingarmynd forystuleysis þeirra sem stýra borginni. Þjónustu borgarinnar hefur hrakað um árabil samhliða versnandi fjárhag hennar og nú er að koma betur í ljós hversu vanmáttug borgin er til að sinna þjónustu sinni við borgarbúa. Það skýrist að miklu leyti af því að það virðist ekki vera markmið vinstri meirihlutans að þjónusta borgarbúa, heldur vill hann að borgarbúar þjóni honum.

Þegar borgarbúar benda á umferðarþunga er þeim sagt að þeir eigi ekki að vera að keyra. Þegar bent er á að götur séu ekki sópaðar fer af stað auglýsingaherferð gegn nagladekkjum og þegar bent er á að ruslið sé ekki sótt er fólk minnt á að flokka ruslið. Þegar rætt er um of hátt íbúðaverð og skort á lóðum, er endurunnum glærum með gömlum áætlunum um íbúðir sem átti að byggja einhvern tímann varpað upp á vegg. Þegar mygla kemur upp í skóla er reynt að láta eins og vandinn sé ekki til staðar og foreldrar sakaðir um móðursýki.

Þetta eru bara nokkur dæmi um það hvernig vinstri meirihlutinn í borginni er með hugann við eitthvað allt annað en að mæta grunnþörfum borgarbúa. Íbúar í Reykjavík þurfa kjörna fulltrúa sem huga að því að einfalda líf þeirra og veita þá þjónustu sem þeir greiða fyrir með útsvari sínu. Þau vandamál sem hér hafa verið rakin, þar með talið leikskólavandinn, verða ekki löguð fyrr en hugarfar og nálgun meirihlutans í borginni gagnvart borgarbúum breytist.

Svo er spurning hvort það breytist. Framsóknarflokkurinn í Reykjavík spurði í aðdraganda kosninga hvort ekki væri kominn tími á breytingar? Kjósendur svöruðu því játandi og felldu meirihlutann. Eina breytingin sem Reykvíkingar fengu er að nú eru fleiri hausar til að afsaka forystuleysið sem áfram einkennir borgina.

Pistillinn „Forystuleysi” birtist í Morgunblaðinu 15. ágúst 2022.

Styrkja framboðið

Það er hægt að styrkja framboðið með því að leggja inn á reikning þess.


Þeir sem styrkja framboðið fá í staðinn gjöf með merki framboðsins á meðan birgðir endast.

Hægt er að styrkja framboði beint með því leggja inná bankareikning framboðsins:  

Kennitala: 620616-0870

Reikningsnúmer: 0133-26-011882

Frambjóðandi má ekki taka við hærri styrkjum frá einstaka fyrirtæki eða lögaðila en sem nemur 400.000 kr. á ári. Birta ber nöfn allra fyrirtækja/lögaðila sem styrkja kosningabaráttu frambjóðandans.

Frambjóðandi má ekki taka við hærri styrkjum frá einstaklingum en sem nemur 400.000 kr. á ári. Birta skal nöfn einstaklinga sem veitt hafa styrki sem metnir eru á meira en 300.000 kr. til kosningabaráttunnar.