Fjögurra milljarða króna forskot

Það er nauðsyn­legt að hugsa reglu­lega um hlut­verk stofn­ana rík­is­ins, hvort fjár­magn sé vel nýtt og hvort starf­sem­in eigi yfir höfuð að eiga vera á veg­um rík­is­ins. Rík­is­út­varpið er ein þess­ara stofn­ana. Sam­kvæmt lög­um er mark­mið þess að stuðla að lýðræðis­legri umræðu, menningarlegri fjöl­breytni og fé­lags­legri sam­heldni í ís­lensku sam­fé­lagi með fjöl­miðlaþjón­ustu í al­mannaþágu. Því […]

Hver ákvað að iðnnám væri lítils virði?

Síðustu daga hef­ur verið um­fjöll­un um mál manns sem ekki fær inn­göngu í lög­reglu­nám við Há­skól­ann á Ak­ur­eyri vegna þess að hann hef­ur lokið iðnnámi en ekki bók­námi. Þetta til­vik er dæmi um það hversu iðnnám á Íslandi er lít­ils metið. Á sama tíma er talað um nauðsyn þess að fjölga út­skrifuðum nem­end­um í iðn-, […]

Við elskum þetta lið

„Þetta ís­lenska lið gerði eig­in­lega ekki neitt.“ Ein­mitt. Messi hef­ur greini­lega ekki lært neitt af hinum taps­ára koll­ega sín­um, Ronaldo, á EM í fót­bolta sum­arið 2016. Þetta lið gerði nefni­lega mjög margt í þess­um leik á laug­ar­dag­inn. Fyr­ir utan að skora mark, verja víti og pakka í stór­kost­lega vörn sem Messi og fé­lag­ar réðu ein­fald­lega […]

Að ganga inn í framtíðina

Um þess­ar mund­ir ganga glaðir stúd­ent­ar út í lífið full­ir til­hlökk­un­ar eft­ir fjölda ára í námi. Þeirra bíður nú að taka ákvörðun um hvort leggja eigi stund á frek­ara nám, hvort tími sé kom­inn til að sækja út á vinnu­markaðinn af full­um krafti eða jafn­vel leggja land und­ir fót, fá reynslu og upp­lif­un úr öðrum […]

Forystuflokkur á landsvísu

Um liðna helgi náði Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn góðum ár­angri víðs veg­ar um land og er sem áður lang­stærsti flokk­ur­inn á landsvísu. Meðaltals­fylgi flokks­ins í þeim 34 sveit­ar­fé­lög­um, sem hann bauð fram í, er tæp 40% og hann er for­ystu­flokk­ur í öll­um stærri sveit­ar­fé­lög­um. Í níu sveit­ar­fé­lög­um náði Sjálfstæðis­flokk­ur­inn hrein­um meiri­hluta og er stærsti flokk­ur­inn í 23 sveit­ar­fé­lög­um. […]

Þar sem hjartað slær

Á ferðalög­um mín­um um landið að und­an­förnu hef ég alls staðar hitt sjálf­stæðis­menn sem eru að ræða við bæj­ar­búa um áhersl­ur sín­ar næstu fjög­ur árin. Þar er á ferðinni öfl­ugt fólk sem skil­ur að það er í okk­ar heima­byggð sem hjartað slær, þar höf­um við fest ræt­ur. Eft­ir viku göng­um við til sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga og ráðum […]

Leikskólamál eru jafnréttismál

Í Reykja­vík eru nú tæp­lega 2.000 börn á biðlista eft­ir leikskólaplássi vegna þess að nú­ver­andi meiri­hluti í borg­inni hef­ur vanrækt starf­semi og upp­bygg­ingu leik­skóla. Á sama tíma þurfa for­eldr­ar þess­ara barna að taka ákvörðun um það hvort þeirra ætl­ar að vera leng­ur heima og ekki á vinnumarkaði. Í flest­um til­vik­um er það kon­an á heim­il­inu […]

Frelsi og val – fyrir alla

Mig lang­ar að heiðra minn­ingu móður minn­ar sem hefði orðið 59 ára í dag, 1. maí, með því að óska öllum til ham­ingju með að ótrú­leg­ar rétt­ar­bæt­ur hafa átt sér stað í mál­efn­um ein­stak­linga með fötlun. Um leið lang­ar mig til að segja frá því hvernig NPA eða not­end­a­stýrð per­sónu­leg aðstoð gef­ur ein­stak­ling­um eins og […]

Það skiptir máli hverjir stjórna

Upp­bygg­ing innviða, upp­bygg­ing heil­brigðisþjón­ustu, öfl­ugri rekst­ur hins op­in­bera og lækk­un skatta. Allt eru þetta ein­kenni fjár­mála­áætl­un­ar næstu fimm ára sem rík­is­stjórn­in kynnti í síðustu viku og þá er list­inn ekki tæmd­ur. Eitt mik­il­væg­asta atriðið í fjár­mála­áætl­un­inni er lækk­un skulda hins op­in­bera. Hún hef­ur gengið hraðar en mark­mið voru um, það hef­ur leitt af sér lægri […]

Kirkjukór en ekki djass

Um liðna helgi voru tveir helgi­dag­ar sam­kvæmt lög­um um helgi­dagafrið; páska­dag­ur og föstu­dag­ur­inn langi. Á þeim dög­um eru strang­ar regl­ur um hvað má og hvað ekki. Meðal þess sem er bannað eru eins og seg­ir í lög­un­um: „Skemmtan­ir, svo sem dans­leik­ir eða einka­sam­kvæmi á opinber­um veit­inga­stöðum eða á öðrum stöðum sem almenn­ing­ur hef­ur aðgang að. […]